"Orð eru til alls fyrst"

Dagana 16.-25. mars var unnið með orðaforða í öllum árgöngum skólans. Verkefnið er liður í læsisverkefnum skólans og var núna ákveðið að beina spjótum að orðum, alls kyns orðum sem lið í því að auka orðaforða og vinna með orðskilning. Afurðin voru orðarenningar með alls kyns orðum og orðskýringum. Mikil ánægja var með verkefnið og má skoða öll skrítnu, skemmtilegu og forvitnilegu orðin í matsalnum, sjá hér.