Frábær frammistaða í gærkvöldi skilaði Síðuskóla 3. sæti í Fiðringnum í ár. Innilega til hamingju með glæsilega frammistöðu á atriðinu "Opnum dyrnar" sem varpar ljósi á erfiðleika og fordóma í garð innflytjenda og hversu sárt og erfitt það getur verið að þurfa að yfirgefa heimili sín. Við sendum jafnframt hamingjuóskir til þeirra níu skóla sem tóku þátt með frábær framlög enda eru allir sigurvegarar sem leggja á sig þessa miklu vinnu og koma fram. Það var svo lið Borgarhólsskóla sem bar sigur úr bítum með atriðið "Ég er ekki lygari" sem fjallar um það hvernig þolendum kynferðisofbeldis er oft ekki trúað. Í öðru sæti var Brekkuskóli með atriðið "Saknaðarsöngur" sem fjallar um að ef við pössum okkur ekki gæti tæknin tekið yfir og farið að stjórna okkur mannfólkinu. Sérstök verðlaun fyrir skemmtilega, vandaða eða skapandi notkun á íslensku hlaut Grunnskóli Húnaþings vestra. Frábær vettvangur sviðslista að festa sig í sessi. Hér má sjá myndir.
