Skólahreysti 2026

Í gær fór Skólahreysti fram í Höllinni og stóð okkar lið sig sérlega vel og lenti í 2. sæti. Virkilega góður árangur og enn möguleiki að komast áfram í lokakeppnina sem fer fram í Reykjavík 23. maí.
Og hrós til allra stuðningsmanna Síðuskóla, þeir studdu vel við sitt fólk í gærkvöldi einsog sjá má á myndum.

Hér má sjá myndir frá æsispennandi kvöldi.