Skólahreystilið Síðuskóla kynnt í dag

Í næstu viku, miðvikudaginn 29. apríl, fer fram Norðurlandsriðill Skólahreysti. Í dag mættu nemendur og starfsfólk í íþróttasal skólans þar sem Skólahreystiliðið var kynnt. Í liðinu eru þau Elías Haukur, Halla, Kári og Sóldís sem öll eru nemendur í 10. bekk. Nokkrir nemendur skólans fengu að keppa við liðið í Skólahreystisþrautum. 

Hér má sjá fleiri myndir frá því í morgun.