Þjálfun í
samskiptum, tilfinningastjórn og athygli barna með ADHD
Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar
býður börnum með ADHD að taka þátt í námskeiði til að efla færni á ýmsum sviðum. Námskeiðið er fyrir
börn fædd árið2004 og 2005 og eru 6 börn í hverjum hóp. Áhersla er lögð á að auka færni barna í
félagslegum samskiptum, skapstillingu, sjálfsstjórn og að bæta athyglisgetu þeirra. Hópurinn hittist tvisvar í viku 2 tíma í senn,
í 5 vikur (10 skipti alls) með tveimur þjálfurum. Eftirfarandi þættir eru teknir fyrir með börnunum í litlum hópum:
Tilfinninga- og reiðistjórnun: Börnunum eru kenndar ýmsar aðferðir við að stilla tilfinningar sínar þegar
það er ekki viðeigandi að sýna þær, m.a. reiðistjórnun í samskiptum. Þar að auki læra þau um tilfinningar, svipbrigði
og áhrif aðstæðna á líðan þeirra og annarra. Sú þekking mun nýtast þeim í samskiptum við aðra.
Félagsfærni:
Farið er yfir atriði eins og hvernig og hvenær er viðeigandi að hefja samskipti við
aðra, samskiptareglur og aukna færni í að setja sig í spor annarra.
Sjálfsstjórn:
Kenndar eru aðferðir sem nýtast við að hamla hvatvísi og auka stjórn á
eigin hegðun.
Þrautalausnir: Farið er yfir aðferðir við að leysa ýmis vandamál sem upp koma á skynsamlegan
hátt. Í því felst að finna valmöguleika í stöðunni, hugsa um mögulega útkomu hvers valmöguleika og velja bestu lausnina til að
ná ákveðnu markmiði.
Athyglisþjálfun:
Í hverjum tíma eyðir hvert barn u.þ.b. 20 mínútum í tölvuforriti sem er ætlað að auka athyglisgetu, vinnsluminni og
vinnsluhraða.
Þjálfarar á námskeiðinu verða Helga
Vilhjálmsdóttir og Guðný Dóra Einarsdóttir sálfræðingar við Sérfræðiþjónustu skóla á
Fjölskyldudeild.
Námskeiðið verður 10. mars–9. apríl, 2014 á mánudögum og
miðvikudögum kl. 16:15-18:15, 10 skipti alls.
Til að sækja um Snillinganámskeiðið vinsamlegast sendið umsókn
á þar til gerðu umsóknarblaði og sendið á Fjölskyldudeild fyrir 24. febrúar.
Umsóknarblað geta forráðamenn fengið hjá skóla eða á Fjölskyldudeild. Nánari upplýsingar hjá Helgu
Vilhjálmsdóttur og Guðnýju Dóru Einarsdóttur í síma 460-1420 eða með tölvupósti á helgav@akureyri.is eða
gudnydora@akureyri.is
Þátttökugjald: kr. 7.000 fyrir námskeiðið