Síðuskóli tók þátt í stærstu sögustund ársins þegar glæný saga Hjalta Halldórssonar - Hetja dagsins - var frumflutt á Rás 1 í morgun. Sagan var í senn skemmtileg og spennandi einsog góðar sögur eiga að vera. Það er barnamenningarfélagið Ibby sem stendur að útgáfu sögunnar og hefur gert undanfarin nokkur ár í tilefni þessa dags. Smásagan er ætluð grunnskólabörnum á öllum aldri og er verkefnið hluti af þeirri hugsjón IBBY að lestraráhugi og lestrarfærni náist fyrst og fremst með því að færa ungum lesendum vandaðar og spennandi sögur. Hjalti Halldórsson hefur getið sér gott orð fyrir skemmtilegar barna- og unglingabækur og eru þær allar til á skólabókasafni Síðuskóla ef áhugi er að lesa fleiri sögur eftir hann.
Einsog sjá má á þessum myndum var hlustað í flestum stofum í morgun og áttu nemendur mjög notalega stund saman.
Takk fyrir okkur.