Starfamessa

Á morgun verður haldin starfamessa fyrir elstu nemendur grunnskóla í sal Háskólans á Akureyri þar sem ýmis fyrirtæki og stofnanir munu kynna starfsemi sína. Markmið starfamessu er að gefa nemendum tækifæri til að kynnast fjölbreyttum störfum og opna augu þeirra fyrir spennandi framtíðarmöguleikum. Nemendur í 9. og 10. bekk Síðuskóla er boðið á starfamessuna og munu fara þangað á skólatíma í fylgd með starfsfólki skólans. Einnig er tilvalið fyrir aðra áhugasama að nýta tækifærið og kynna sér fjölbreytt fyrirtæki og störf á svæðinu.