Í morgun var fjör og gleði á söngsal. Ólöf byrjaði stundina á því að segja frá því að Karen í 4. bekk var ein af tíu verðlaunahöfum úr 4. bekk yfir allt landið í teiknisamkeppni MS, glæsilegur árangur og skemmtileg mynd einsog sjá má í myndasafninu hér að neðan. Svo kom hann Helgi frá Terra til að hrósa nemendum og starfsfólki fyrir árangur sinn í flokkunarmálum sem skólinn hlaut viðurkenningu fyrir á dögunum. Svo var mál málanna að tilkynna hvaða röð hafði verið valin áður en 100 miða leikurinn fór af stað. En það er algjört lottó hvaða númer nemendur draga, þegar þau fara með sérstöku hrósmiðana sem er útdeilt þessa 10 daga sem leikurinn stendur yfir. Í ár hafði Ólöf ákveðið að það skyldi vera öll númer með 6 í sem fengju verðlaunin í ár sem að þessu sinni var að fara saman í klifur í 600klifur og út að borða eftir söngsal. Svo var loksins hægt að fara að syngja og allir tóku vel undir og skemmtu sér vel einsog sjá má á myndunum hér.