Síðustu dagar vetrar voru vel nýttir í Síðuskóla. Á þriðjudag og miðvikudag voru þemadagar þar sem hefðbundin stundaskrá var lögð til hliðar og nemendur unnu að ýmsum skemmtilegum verkefnum á stigunum. Yngsta stig vann með sögur Astrid Lindgren á fjölbreyttan hátt, bjuggu til húsið hennar Línu langsokks og allar helstu persónur sögunnar, settu upp Matthíasarskóg og Helvítisgjána úr Ronju ræningjadóttur og bjuggu til boga, örvar og rassálfa. Miðstigið undirbjó Barnamenningarhátíð en setti einnig upp heilan regnskóg á B-gangi ásamt því að kynna sér hinar ýmsu dýrategundir. Unglingastigið lagði áherslu á heilsu, heilbrigði og útiveru. Þau unnu verkefni, spiluðu ýmis spil, kepptu á blakmóti unglingastigs og hresstu upp á útisvæði skólans svo eitthvað sé nefnt. Virkilega skemmtilegir dagar þar sem sköpunargleðin réð ríkjum.
Hér má sjá fleiri myndir frá þemadögum.
Sjálf Barnamenningarhátíð miðstigs fór svo fram milli kl. 14 og 16 á miðvikudaginn. Þar sýndu nemendur listaverk og muni sem þeir hafa verið að vinna að í vetur auk þess sem sýnd voru dans- og tónlistaratriði sem nemendur höfðu æft og undirbúið fyrir hátíðina. Nemendur seldu einnig gestum bakkelsi og límonaði sem þeir höfðu gert sjálfir. Ágóðinn af kaffisölunni fer í að gleðja okkar góðu nágranna á Lögmannshlíð. Barnamenningarhátíð var vel sótt og þökkum við gestum kærlega fyrir komuna.