Tónleikar í Hofi

Laugardaginn 27. janúar 2018 kl 14 verða barnatónleikar í Hömrum í Hofi. Er þessi viðburður hluti af 75 ára afmælisviku Tónlistarfélags Akureyrar. Blásarakvintettinn NorðAustan 5-6 flytur hið sívinsæla tónlistarævintýri um Pétur og úlfinn eftir Prokofiev. Flytjendur eru Hildur Þórðardóttir flautuleikari, Gillian Haworth óbóleikari, Berglind Halldórsdóttir klarinettuleikari, Dagbjört Ingólfsdóttir fagottleikari og Ella Vala Ármannsdóttir hornleikari. Sögumaður er Ívar Helgason. Miðaverð er 2500 krónur, 20% afsláttur fyrir félagsmenn Tónlistarfélags Akureyrar, frítt fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum. Hægt er að kaupa miða á mak.is og í miðasölu Hofs. Styrktaraðilar þessara tónleika eru Akureyrarstofa, Menningarfélag Akureyrar, Kea, Norðurorka og Rannís.

Laugardaginn 27. janúar 2018 kl 14 verða barnatónleikar í Hömrum í Hofi. Er þessi viðburður hluti af 75 ára afmælisviku Tónlistarfélags Akureyrar. Blásarakvintettinn NorðAustan 5-6 flytur hið sívinsæla tónlistarævintýri um Pétur og úlfinn eftir Prokofiev. Flytjendur eru Hildur Þórðardóttir flautuleikari, Gillian Haworth óbóleikari, Berglind Halldórsdóttir klarinettuleikari, Dagbjört Ingólfsdóttir fagottleikari og Ella Vala Ármannsdóttir hornleikari. Sögumaður er Ívar Helgason.


Miðaverð er 2500 krónur, 20% afsláttur fyrir félagsmenn Tónlistarfélags Akureyrar, frítt fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum. Hægt er að kaupa miða á mak.is og í miðasölu Hofs. Styrktaraðilar þessara tónleika eru Akureyrarstofa, Menningarfélag Akureyrar, Kea, Norðurorka og Rannís.


Kvintettinn var stofnaður árið 2016 með það að markmiði að sameina hljóðfæraleikara er búa

við fámenni í tónlistarlífi síns byggðarlags og hafa ekki oft tækifæri til að spila kammertónlist.

Með þessu framtaki er verið að fjölga tækifærum þessara frábæru tónlistarmanna til að spila

slíka tónlist og deila þeirri ástríðu með tónleikagestum. Hér eru saman komnar konur búsettar á

Egilsstöðum, Neskaupstað, Reyðarfirði, Akureyri og Svarfaðardal.

Þau lofa líflegum flutningi, það verða búningar og einhverjir leikmunir og auðvitað fer Ívar á

kostum eins og honum einum er lagið.