Upphaf skólaársins 2026-2027

Upphaf skólaársins 2026-2027

Síðuskóli verður settur mánudaginn 24. ágúst. Tímasetningar eru sem hér segir:
2. - 5. bekkur mætir kl. 9:00.
6. - 10. bekkur mætir kl. 10:00.


Nemendur mæta í sínar heimastofur og koma síðan á sal með starfsfólki. Hér fyrir neðan er hægt að sjá kort af skólanum og á því eru heimastofur bekkjanna. Foreldrar og nemendur 1. bekkjar verða boðaðir í viðtal til umsjónarkennara með tölvupósti.

Foreldrar/forráðamenn eru velkomnir með börnunum sínum á skólasetningu, við biðjum þá sem mæta með sínum börnum að mæta með þeim fyrst í heimastofu.

Skólinn hefst svo samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 25. ágúst.
Eins og áður munum við byrja haustið á úti íþróttum svo það er mikilvægt að nemendur komi klæddir eftir veðri.