Upphátt 2026

Uppháttt - upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri fór fram í Brekkuskóla þriðjudaginn 10. mars. Okkar fulltrúar voru Aníta Þórunn og Vilborg Harpa í 7. bekk. Þær stóðu frábærlega eins og öll hin sem tóku þátt. Vinningshafi í ár var Hákon Geir úr Lundarskóla, Birgitta Ósk Brekkuskóla hlaut 2. sæti og Friðrik Örn Glerárskóla hreppti 3. sæti. Óskum við þeim öllum til hamingju.