Upphátt - úrslit í Síðuskóla

Í morgun fóru fram úrslit í 7. bekk fyrir Upphátt - stóru upplestrarkeppnina á Akureyri. Í hana fara tveir fulltrúar frá hverjum skóla en hún fer fram 10. mars kl. 15 í Brekkuskóla. Keppnin var afar spennandi enda allir krakkarnir mjög frambærilegir í upplestri og höfðu æft sig vel. Dómarar í ár voru Jónína Sveinbjörnssdóttir og Bragi Bergmann, fyrrum kennarar við skólann. Niðurstaðan var sú að Aníta Þórunn og Vilborg Harpa verða fulltrúar okkar í ár og óskum við þeim til hamingju og hlökkum til að fylgja þeim eftir í Brekkuskóla eftir 11 daga. 

Sjá myndir hér