Upplestur fyrir miðstig

Í morgun fékk miðstigið heimsókn. Þar var kominn rithöfundur og kennari úr Reykjavík, hann Bergþór Ólafsson og las uppúr nýrri bók sinni Draumar. Bók sem fjallar um krakka í 7. bekk og það sem drífur á daga þeirra. Hann gaf skólanum eitt eintak sem við þökkum kærlega fyrir. Bókasafnið keypti einnig nokkur í viðbót svo fleiri fái notið í einu.