Upptakturinn - ungskáld á Akureyri

Á vef MAk kemur fram að sjö verk eftir ung og upprennandi tónskáld, hafa verið valin til þátttöku í Upptaktinum á Akureyri. Upptakturinn er tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna og er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Hörpu og styrktur af SSNE. Höfundarnir, sem í þetta sinn eru á aldrinum 10-12 ára og öll frá Akureyri, hafa þegar hafið vinnuna við það að gera hugmynd að lagi með tónlistarkonunni Gretu Salóme, sem sér auk þess um útsetningu verkanna sjö fyrir hljómsveit. Einn þátttakandanna kemur úr Síðuskóla, hún Ólöf Birna Kristjánsdóttir, og erum við að vonum afar stolt af því og óskum henni og hinum krökkunum til hamingju og góðs gengis með afar spennandi verkefni. Gaman þegar krökkum eru veitt slík tækifæri.  

Uppskeruhátíðin  verður sunnudaginn 19. apríl kl 17 þegar tónskáldin og aðstandendur þeirra hlýða á atvinnuhljóðfæraleikara flytja verkin á tónleikum í Menningarhúsinu Hofi.