Útivistardagur í Hlíðarfjalli

Fimmtudaginn 16 mars er fyrirhugaður útivistardagur í Hlíðarfjalli. Þá fara allir nemendur skólans með rútu í Hliðarfjall að morgni og koma til baka kringum hádegi. Þeir sem eru í 6. bekk og eldri mega vera lengur með skriflegu leyfi foreldra. 

Engin hefðbundin kennsla verður þennan dag.

Mæting í skólann er kl. 8:00. Farið verður upp í Hlíðarfjall frá skólanum og fyrsta rúta leggur af stað ca. 8:20.

Nemendur velja hvort þeir fara á skíði, bretti, gönguskíði, sleða, snjóþotu eða í göngutúr.

Fyrir 3. – 10.  bekk er í boði að fá lánaðan búnað í fjallinu og eru íþróttakennarar búnir að mæla stærðir og skrá óskir nemenda. 

Yngstu nemendurnir ( 1. – 3. bekkur ) mega koma með sinn búnað ef þeir eru vanir.

Gönguskíðabúnaður er í boði fyrir alla nemendur.

Þessi ferð er nemendum að kostnaðarlausu!

Nemendur þurfa að koma með skriflegt leyfi að heiman 

ef þeir ætla að vera lengur en til 12:30 uppi í fjalli ( í boði fyrir 6. – 10. bekk).

Skóladegi  lýkur kl.  13:15 og nemendur í frístund fara þangað. 

Nemendur sem eru skráðir í mat borða þegar þeir koma úr fjallinu.

• Munið eftir næringaríku og góðu nesti sem auðvelt er að neyta úti.

• Hjálmaskylda er þennan dag og engar undantekningar leyfðar. Hægt er að fá lánaða hjálma í fjallinu.