26.01.2018
Föstudaginn 26. janúar er Skákdagurinn haldinn hátíðlegur um allt land. Víða er teflt s.s. í skólum, vinnustöðum, heitum pottum, kaffihúsum og dvalarheimilum svo dæmi séu nefnd. Í Síðuskóla fengum við félaga úr Skákfélagi Akureyrar í lið með okkur og buðum upp á skákfræðslu og tækifæri til tefla í 5. - 10. bekk. Fjölmargir nemendur þáðu boðið og á meðfylgjandi myndum má sjá ánægða og áhugasama nemendur við taflborðin. Hugmyndin er að bjóða upp á skólaskákmót í framhaldi af þessum viðburði en það verður dagsett og auglýst síðar. Skákdagurinn 2018 er tileinkaður Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga og fv. forseta Alþjóða skáksambandsins. Friðrik verður 83ára á Skákdaginn sjálfan. Myndir
Lesa meira
25.01.2018
Laugardaginn 27. janúar 2018 kl 14 verða barnatónleikar í Hömrum í Hofi. Er þessi viðburður hluti af 75 ára afmælisviku Tónlistarfélags Akureyrar. Blásarakvintettinn NorðAustan 5-6 flytur hið sívinsæla tónlistarævintýri um Pétur og úlfinn eftir Prokofiev. Flytjendur eru Hildur Þórðardóttir flautuleikari, Gillian Haworth óbóleikari, Berglind Halldórsdóttir klarinettuleikari, Dagbjört Ingólfsdóttir fagottleikari og Ella Vala Ármannsdóttir hornleikari. Sögumaður er Ívar Helgason.
Miðaverð er 2500 krónur, 20% afsláttur fyrir félagsmenn Tónlistarfélags Akureyrar, frítt fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum. Hægt er að kaupa miða á mak.is og í miðasölu Hofs. Styrktaraðilar þessara tónleika eru Akureyrarstofa, Menningarfélag Akureyrar, Kea, Norðurorka og Rannís.
Lesa meira
19.01.2018
Næstkomandi mánudag og þriðjudag, 22. og 23. janúar, eru
foreldraviðtöl í Síðuskóla. Þá daga mæta foreldrar til viðtals við
umsjónarkennara með barni sínu. Aðrir kennarar verða einnig til viðtals í sínum
heimastofum eftir þörfum.
Lesa meira
15.01.2018
Á föstudaginn sl.
fögnuðum við þeim áfanga að hafa náð 20.000 hrósmiðum. Haldin er hátíð þegar
þessum fjölda hrósmiða er náð þar sem allir nemendur taka þátt. Í ár dönsuðu allir
Zumba í íþróttahúsinu undir stjórn Þórunnar Sigurðardóttur og Kolbrúnar
Sveinsdóttur, sem jafnframt er starfsmaður skólans. Gaman var að sjá hvað allir
skemmtu sér vel í dansinum eins og sést á myndunum sem fylgja fréttinni, en þær
má sjá hér. Einnig má sjá skemmtileg myndbönd af hátíðinni hér.
Lesa meira
05.01.2018
Síðuskóli er
þátttakandi í Erasmus+ verkefni með 4 öðrum skólum í Evrópu. Verkefnið
heitir Traces of Europe og snýst um það að þessir 5 skólar kynna hver fyrir
öðrum kennsluaðferðir sem þeir nota og hafa nýst vel. Pólland lagði inn í
verkefnið aðferðina „lært í gegnum leik“ (Game based learning). Við í
Síðuskóla eigum að reyna að kokma þessum aðferðum áleiðis í aðra skóla og var
það gert nú í byrjun janúar er farið var í Brekkuskóla og nokkrir námsleikir
kynntir fyrir kennurum þar. Vonandi ná einhverjir kennarar að nýta sér
þessa leiki. Myndir frá heimsókninni í Brekkuskóla má sjá hér.
Lesa meira
22.12.2017
Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum, foreldrum og öðrum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.
Nemendur mæta aftur í skólann fimmtudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.
Lesa meira
15.12.2017
Síðasti skóladagurinn í Síðuskóla fyrir jólafrí er 21. desember. Þá verða litlu jólin haldin frá klukkan 9:00-11:00. Dagskrá er með hefðbundnu sniði. Það mæta allir í sínar heimastofur klukkan 9:00. Það horfa allir á jólaleikrit 6. bekkjar á sal sem tekur um 20 mínútur en dvelja svo með umsjónarkennara í heimastofum. Þangað koma jólasveinar í heimsókn og færa nemendum mandarínur.
Um klukkan 10:00 verður farið inn í íþróttasal en þar munu allir nemendur skólans ganga saman kringum jólatré og syngja saman gömul og góð jólalög. Dagskrá lýkur klukkan 11:00 þennan morgun. Þá fara nemendur heim, nema þeir sem skráðir eru í Frístund þennan dag. Skóli hefst aftur að jólaleyfi loknu fimmtudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.
Lesa meira
08.12.2017
Leitinni að Grenndargralinu er lokið þetta skólaárið en það var nemandi í 9. bekk, Halldór Birgir Eydal sem fann Grenndargralið í ár. Að launum fær hann verðlaunapening og veglegan farandbikar sem geymdur verður í skólanum næsta árið eða þar til keppninni lýkur að ári. Þeir sem þátt tóku í leitinni og skiluðu svörum við öllum þrautunum fengu einnig afhent viðurkenningarskjal fyrir framúrskarandi þátttöku.
Myndir af sigurvegara leitarinnar og nemendum sem skiluðu sínu með sóma.
Lesa meira
08.12.2017
Miðvikudaginn 6. desember var sannkölluð jólastund í Síðuskóla. Dagurinn hófst á jólasöngsal en meðan nemendur gengu inn í salinn spilaði fjögurra manna blásarasveit jólalög. Þessa sveit er skipuð tveimur starfsmönnum skólans, þeim Gutta og Malla en auk þeirra komu Gísli og Þorkell og eiga þeir skilið miklar þakkir. Nemendur sungu síðan jólalög við undirspil Ívars Helgasonar.
Að söngsal loknum tók við jóladagskrá þar sem hvert stig, yngsta stig, miðstig og elsta stig vann saman. Ýmislegt skemmtilegt var í boði, s.s. alls kyns föndur og bakstur, spil og spjall. Í hádeginu var síðan sannkallaður jólamatur á boðstólnum, skinka og tilheyrandi meðlæti.
Myndir söngsal
Myndir jólaþema
Lesa meira
30.11.2017
Í dag, á fulldeldisdaginn 1. desember, ákváðum við í Síðuskóla að hafa sparifatadag. Það var gaman að sjá hve margir komu sparilega klæddir, í skólann, bæði nemendur og starfsfólk. Við fengum góða gesti í heimsókn úr blásarasveit sem spilaði nokkur jólalög fyrir nemendur á yngsta stigi. Aldrei að vita nema við fáum að heyra í þeim aftur síðar.
Unglingarnir okkar hafa verið á faraldsfæti í dag. Nemendum 10. bekkjar var boðið að taka þátt í Þjóðfundi í Háskólanum á Akureyri en þar voru jafnréttismál rædd og Íslandsklukkinni hringt 17 sinnum. Á sama tíma fór fram í Hofi Ungmennaþing UNISEF og þar átti Síðuskóli fulltrúa úr 8. 9. og 10. bekk. Myndir af yngsta stigi.
Lesa meira