24.10.2017
Erasmusverkefnið
Traces of Europe sem Síðuskóli er hluti af er nú hálfnað. Við erum í
samstarfi við skóla í Rúmeníu, sem sérhæfir sig í útikennslu, á Ítalíu, sem er
framarlega í upplýsingamennt, í Noregi, sem er mikið með sýnileika verkefna,
fjórði skólinn er í Póllandi þar sem við lærum „lært í gegnum leik“ Game
based learning, og svo erum við með Byrjendalæsið.Verkefnið gengur
nokkuð vel og nú stendur yfir innleiðing GBL eftir heimsókn okkar til
Póllands. Vonandi verða nemendur varir við það þegar á nóvember líður að
kennarar nýti það sem Pólland lagði til í verkefniið.Traces of Erope
verkefnið heldur áfram þar til vorið 2019 en þá lýkur verkefninu sem vonandi
skilur eftir sig einhverjar hugmyndir handa kennurum sem leiða til nýrra
kennsluhátta eða öðruvísi nálgunar á kennsluefnið.
Traces of Europe
merkið er utan á skólanum við innganginn í íþróttahúsið.
Lesa meira
23.10.2017
Í dag unnu nemendur og kennarar í 7. bekk að því að pakka gjöfum og góðgæti fyrir verkefnið jól í skókassa. Þetta er lokaspretturinn á þessu skemmtilega árvissa verkefni sem 7. bekkur Síðuskóla hefur unnið að síðustu ár. Svo á bara eftir að skila gjöfunum af sér. Nemendur og starfsfólk hafa síðustu vikur safnað saman varningi af ýmsu tagi til að setja í kassana. Þessu er síðan pakkað niður og merkt stelpu eða strák og svo viðeigandi aldri. Þeir fara síðan sem jólagjafir til fátækra barna í úkraínu. Hér má sjá myndir af innpökkun í dag.
Lesa meira
11.10.2017
Föstudaginn 13.
október er Bleiki dagurinn! Þennan dag hvetur Krabbameinsfélagið alla landsmenn til að sýna samstöðu
með þeim konum sem greinst hafa með krabbamein og klæðast bleiku þennan dag.
Stuðningur okkar allra skiptir
máli.
Lesa meira
10.10.2017
Nemendur í 1. bekk taka núna þátt í áhugaverðu verkefni sem
kemur frá Háskólanum á Akureyri. Það gengur út á að nemendur úr kennara- og
auðlindadeild háskólans koma í sex skipti og kynna náttúruvísindi fyrir
nemendum auk þess sem gerðar eru stuttar tilraunir. Fyrsti tíminn var í síðustu
viku og voru nemendur mjög áhugasamir og hlakka til að taka þátt í þessu
skemmtilega verkefni. Myndir úr fyrsta tímanum má sjá hér.
Lesa meira
04.10.2017
Fréttabréf apríl
Fréttabréf mars
Fréttabréf febrúar
Fréttabréf janúarFréttbréf desember
Fréttabréf nóvember
Fréttabréf október
Fréttabréf september
Lesa meira
20.09.2017
Í gærmorgun söfnuðust nemendur og starfsfólk skólans á sal þar sem nýtt nemendaráð kynnti sig. Rainer íþróttakennari veitti einnig viðurkenningar fyrir góðan árangur í norræna skólahlaupinu sem fór fram 5. september sl. Þá voru einnig veitt verðlaun fyrir keppnina „Náttúrufræðingur Síðuskóla“ sem fram fór í síðustu viku. Þar tóku þátt nemendur í 2. – 10. bekk. Þeim voru sýndar fimm myndir af fuglum, fimm af plöntum og fimm af stöðum á Íslandi og áttu að skrifa niður á blað nöfn á því sem þeir þekktu. Sá nemandi sem vann í ár er Sóley Brattberg, nemandi í 9. bekk. Aðrir sem fengu verðlaun fyrir góðan árangur voru Úlfur Magni Teitsson 3. Bekk, Kristlaug Eva Wium 8. bekk, Gunnar Brimir Snævarsson 4. bekk, Sigrún Freygerður Finnsdóttir 6. bekk og Tryggvi Snær Hólmgrímsson 9. bekk. Við óskum öllum þessum nemendum innilega til hamingju með árangurinn. Á myndinni má sjá vinningshafa dagsins, en fleiri myndir frá samkomunni má sjá hér.
Lesa meira
15.09.2017
Síðustu tveir dagar hafa verið uppbrotsdagar í skólanum. Þá var hefðbundin stundaskrá brotin upp og unnin verkefni bæði úti og inni. Markmið þessara daga var að vinna verkefni í tengslum við náttúruna og margir tengdu verkefnin við vatnið en það er þemað okkar fyrir næsta Grænfána. Í dag héldum við svo upp á Dag íslenskrar náttúru en hann er þann 16. september. Verkefnin tókust vel og skemmtu allir sér hið besta eins og sjá má á myndunum sem fylgja.
Lesa meira
14.09.2017
Krakkarnir í 2.bekk erum búnir að vinna mikið með plöntur og lífsferil þeirra í ágúst og september. Hér eru myndir frá vinnunni með blóm og kartöflur þar sem farið var meðal annars í vettvangsferðir í Krossanesborgir og Listigarðinn. Kartöflurnar voru nýttar í mælingar, myndmennt og kartöflurétti.
Lesa meira
08.09.2017
Í dag 8. september er alþjóðadagur læsis. Af því tilefni er ýmislegt gert í skólanum til að minna á mikilvægi læsis í okkar samfélagi. Nemendur á yngsta
stigi fóru á sal og lásu þar upphátt og hver fyrir annan og aðrir hlustuðu af
athygli og fylgdust með myndum og texta af tjaldi. Á miðstigi skrifuðu nemendur ýmis skilaboð
til íbúa hverfisins og settu í bréfalúgur eða póstkassa og hengdu orðsendingar á ljósastaura. Nemendur 7. bekkjar heimsóttu Lögmannshlíð og lásu upphátt fyrir
íbúa þar. Á unglingastigi veltu nemendur upp ýmsum spurningum er varða
mikilvægi og gagnsemi læsis. Unnið var í hópum og afraksturinn svo kynntur
samnemendum. Myndir frá deginum og myndir frá Lögmannshlíð
Læsi er lykillinn er nú heimasíða með læsisstefnu leik- og grunnskólanna á Akureyri. Heimasíðan er öllum opin slóðinni lykill.akmennt.is. Læsisstefnan og vefsíðan eru unnar í góðu samstarfi leik- og grunnskólanna á Akureyri, fræðslusviðs Akureyrarbæjar og Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
Foreldrar eru mikilvæg fyrirmynd þegar kemur að lestri.
Lesa meira
06.09.2017
Miðvikudaginn 6. september hefst átakið GÖNGUM Í SKÓLANN sem er verkefni á landsvísu. Allir eru hvattir til að koma gangandi eða á hjólum í skólann eða nota almenningssamgöngur sem eiga lengri leið að fara. Hægt er að lesa um verkefnið hér.
Lesa meira