ÍSAT

Árshátíðarskipulag - breytingar

Árshátíð unglingastigs verður seinni partinn í dag. Sýning hefst klukkan 17:00 og stendur til 18:30. Þá verður hlé þar til ballið hefst klukkan 20:30-23:30. Mánudagurinn 27. nóvember verður skipulagsdagur starfsmanna eins og til stóð og frí hjá nemendum. Frístund opnar klukkan 13:00.
Lesa meira

Skólahald í dag

Eins og fram hefur komið í tölvupósti fellur skólahald á Akureyri niður í dag. Við munum skoða það í dag hvort við höldum árshátíðina seinnipartinn fyrir unglingana og ballið í kvöld. 
Lesa meira

Skipulag árshátíðar

Við minnum á árshátíð skólans á fimmtudag og föstudag. Skipulag sýninga má sjá hér. Myndir verða settar inn en jafnt og þétt. 1. foreldrasýning 2. foreldrasýning  3. sýning, árshátíð miðstigs 4. sýning, árshátíð unglingastigs Ball unglingastigs 5. sýning, foreldrasýning Myndataka nemendur, 1, 2, 3, 4.
Lesa meira

Dagur íslenskrar tungu

Í gær, 16. nóvember, var Dagur íslenskrar tungu en hann er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk og Litla upplestrarkeppnin í 4. bekk voru settar á sal snemma morguns eins og venjan er, auk þes sem fjallað var um ævi og feril Jónasar. Síðan hittust vinabekkir og spiluðu þar sem eldri leiðbeindu og hjálpuðu þeim yngri. Nemendur í 4. bekk heimsóttu leikskóla í hverfinu og lásu fyrir börnin þar og stóðu sig með stakri prýði. Myndir frá deginum má sjá hér.
Lesa meira

Árshátíð Síðuskóla

Árshátíð Síðuskóla verður haldin fimmtudaginn 23. og föstudaginn 24. nóvember nk. Á fimmtudeginum hefst skóli klukkan 8:00 og stendur til kl. 13:00 hjá yngstu nemendum en 5.—10.bekkur hættir um hádegisbil. 1. bekkur dvelur í skólanum fram að sýningu kl. 14:30 þennan dag þar sem þeir taka þátt í fyrstu foreldrasýningunni. Eldri nemendur ljúka skóla um hádegi en það getur verið aðeins breytilegt eftir því hvernig stendur á. Klukkan 14:30 hefst fyrsta foreldrasýning og þá tekur við dagskrá samkvæmt meðfylgjandi skipulagi. Á föstudag er engin kennsla samkvæmt stundaskrá heldur mæta nemendur í skólann miðað við skipulag.
Lesa meira

Niðurstöður skólapúlsins

Skólapúlsinn er hluti af innra mati skólans. Nemendur leggja mat á ýmsa þætti sem snúa að skólanum og svarar hluti nemenda spurningum nafnlaust reglulega yfir skólaárið. Nú eru komnar niðurstöður þar sem fjórðungur nemenda hefur svarað, sjá hér. Niðurstöður frá fyrri árum eru aðgengilegar hér á heimasíðunni undir mati á skólastarfi.
Lesa meira

Baráttudagur gegn einelti

Í dag, 8. nóvember, er baráttudagur gegn einelti. Við í Síðuskóla komum saman út á lóð í gærmorgun og mynduðum tvö hjörtu á lóðinni, annað var mótað af nemendum og hitt af starsfólki inn í stóra hjartanu. Við vildum með þessu sýna að við í skólanum stöndum saman gegn einelti af öllu tagi, erum góð hvert við annað og sýnum virðingu í samskiptum. Með fréttinni fylgja nokkrar myndir sem teknar voru úr lofti af þessu tilefni. Þær má sjá hér. Gunnar Björn Gunnarsson tók þessar skemmtilegu myndir.
Lesa meira

Hrekkjavökuball – Búningaball

Þriðjudaginn 31. október ætlar 10. bekkur að hafa böll fyrir nemendur 1. – 7. bekkjar í tilefni af hrekkjavöku. Böllin verða sem hér segir: Kl. 16:00 – 17:20 verða 1. og 2. bekkur Kl. 17:30 – 18:50 verða 3. og 4. bekkur Kl. 19:00 – 20:30 verða 5., 6. og 7. bekkur Aðgangseyrir er kr. 500,- á öll böllin. Sjoppan verður einungis opin hjá 3. - 7. bekk. Yngstu krakkarnir, 1. og 2. bekkur, fá hins vegar popp og svala með sínum aðgangseyri. Allur ágóði rennur í ferðasjóð 10. bekkinga.
Lesa meira

Haustfrí nemenda og kennara

Föstudaginn 27. október og mánudaginn 30. október er haustfrí í öllum grunnskólum Akureyrar. Frístund er opin fyrir þá sem skráðir eru til vistunar þar þessa daga.
Lesa meira

Göngum í skólann

Nú er nýlokið árlegu átaki Síðuskóla sem ber heitið Göngum í skólann. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni.  Nemendur skráðu hvernig þeir ferðuðust í skólann og þær upplýsingar voru svo teknar saman og settar upp á vegg. 
Lesa meira