11.06.2015
Hér má sjá myndir frá skólaslitunum.
Lesa meira
04.06.2015
Í dag var síðasti skóladagur nemenda í Síðuskóla þetta skólaárið. Nemendur fóru út um allan bæ og
unnu ýmis verkefni. Þegar krakkarnir fóru að tínast aftur í hús upp úr hálf tólf biðu þeirra grillaðar pylsur og
safi sem þau gerðu góð skil. Smelltu hér til að skoða myndir.
Lesa meira
04.06.2015
Í dag 4.júní var ljósmyndamaraþon í 8.bekk þar sem ýmis hugtök voru fönguð með ljósmyndatækni
nútímans, þ.e.a.s. símum nemenda. Myndirnar voru misgóðar eins og gengur en hér eru
sýnishorn af því hvernig þau unnu út frá hugtökunum. Dagurinn heppnaðist vel og margar mjög skemmtilegar myndir bárust.
Úrslit verða kunngjörð á morgun á skólaslitum og myndasyrpa sigurvegaranna verður þá jafnframt birt á heimasíðunni.
Lesa meira
03.06.2015
Síðustu skóladagarnir eru alltaf svolítið öðruvísi. Þá fara nemendur út og vinna ýmis verkefni eða skoða og kynnast
einhverju spennandi í umhverfinu. 5. bekkur er búinn hafa í nógu að snúast og hér má
sjá hvað þau hafa verið að gera og nokkrar myndir frá þeirra ferðum og ævintýrum.
Fullt af skemmtilegum myndum má sjá hér.
Lesa meira
02.06.2015
Skólaslit í Síðuskóla vorið 2015 verða föstudaginn 5. júní.
1. - 4. bekkur mætir klukkan 9.00 á sal Síðuskóla.
5. - 9. bekkur mætir klukkan 10.00 á sal Síðuskóla.
10. bekkur klukkan 15.00 í Glerárkirkju. Að útskriftarathöfn lokinni er kaffi og meðlæti í Síðuskóla
í boði 10. bekkjar.
Lesa meira
01.06.2015
Þrátt fyrir dumbungsveður í morgun drifu krakkarnir í 1. bekk sig út og settu niður kartöflur í einn innigarðinn. Þau klæddu sig
vel, munduðu skóflur og hrífur og potuðu svo útsæðinu niður. Nú er bara að bíða eftir uppskerunni með haustinu. Hér má sjá myndir.
Lesa meira
31.05.2015
Í þessu fréttabréfi má sjá skipulag á umhverfisdögum, fyrirkomulag
skólaslita og fréttir úr skólalífinu þessa síðustu daga.
Hér má sjá fréttabréfið.
Lesa meira
27.05.2015
Þann 26. maí veitti skólanefnd Akureyrar viðurkenningar nemendum og starfsfólki leik- og grunnskóla, sem
skarað hafa fram úr í skólastarfi. Fræðslustjóri, Soffía Vagnsdóttir, bauð gesti velkomna og formaður skólanefndar, Bjarki
Ármann Oddsson, afhenti viðurkenningar. Sóley Brattberg Gunnarsdóttir, nemandi í Síðuskóla hlaut viðurkenningu. Einnig hlaut Foreldra- og kennarafélag Síðuskóla viðurkenningu fyrir
jákvæðan og öflugan stuðning við skólastarfið. Til hamingju öll.
Hér má sjá nánari
fréttir af viðurkenningunum.
Lesa meira
25.05.2015
Þriðjudaginn 26. maí verður skipulagsdagur í Síðuskóla. Kennarar og annað starfsfólk mun vinna að undirbúningi síðustu
daga skólaársins. Nemendur mæta miðvikudaginn 27. maí samkvæmt stundaskrá.
Lesa meira
21.05.2015
Svíþjóðarferð
Föstudaginn 15. maí lagði forritunarhópurinn af stað klukkan
þrjú frá Síðuskóla. Ferðinni var heitið til Svíþjóðar að heimsækja vini okkar í Södertörns
Friskola. Við ókum sem leið lá í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þegar komið var í flugstöðina þurftum við að
bíða þó nokkurn tíma en flugum frá Íslandi klukkan 1:15 um nóttina og lentum klukkan 6 á Arlanda (tímamismunur 2
tímar).
Við ferðuðumst með lestum til gestgjafa okkar og svo heim með
þeim. Þegar þarna var komið við sögu var kominn laugardagsmorgunn í Svíþjóð en margir hjá okkur ósofnir. Við
lögðum okkur til hádegis en þá fórum við ýmist í skemmtigarð eða í búðir. Á sunnudeginum fengum við kynningu
á skólanum og umhverfi hans en höfðum síðan frí.
Við heimsóttum skólann á mánudegi og hittum
þá krakkana og kennarana. Við unnum þar saman í verkefnum, mest að leikjunum og fréttaskráningu en fórum líka í tíma
sem var fint.
Dagarnir hafa liðið hratt og mikið að gerast. Við erum stanslaust
að gera eitthvað skemmtilegt og kynnast nýjum krökkum og hefðum og venjum. Okkur líður vel hér og vildum gjarnan taka ýmislegt upp sem er við
lýði hér í skólanum í Huddinge í Sverge. En þegar öllu er á botninn hvolft er fínt að vera í
Síðuskóla.
Bestu kveðjur frá Sverge,Fréttamannateymið
Lesa meira