02.11.2015
Nú er komið nýtt fréttabréf fyrir nóvember mánuð. Það má finna hér. Í þessu fréttabréfi er m.a. fjallað um læsi, verkefnið jól í skókassa og birtar myndir frá bleikum degi í október. Þá er matseðill mánaðarins á sínum stað.
Lesa meira
28.10.2015
Í dag komu krakkar af leikskólanum Sunnubóli í heimsókn í 1. bekk.
Hér má sjá myndir
Lesa meira
28.10.2015
Hér í Síðuskóla hefur skapast sú hefð að nemendur í 7. bekk taka þátt í verkefninu Jól í skókassa. Nemendur unnu saman í hópum, byrjað var á því að pakka skókassa inn í jólapappír. Í kassann voru settar gjafir fyrir krakka á ákveðnum aldri og fyrir annað hvort stelpur eða stráka. Hóparnir komu með dót að heiman og keyptu það sem upp á vantaði. Pakkarnir verða síðan sendir til Úkraínu til barna sem búa við slæm skilyrði.
Hér má sjá myndir af nemendum við að pakka og flokka gjafir.
Lesa meira
13.11.2015
Föstudaginn 13. nóvember er þemadagur þar sem hefðbundið skólastarf er brotið upp. Nemendur vinna verkefni óháð stundaskrá og mismunandi árgangar vinna að einhverju leyti saman.
Lesa meira
19.10.2015
Þriðjudaginn 20. október og miðvikudaginn 21. október eru viðtalsdagar í skólanum. Frístund er opin fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir. Skipulagsdagar eru fimmtudaginn 22. október og föstudaginn 23. október og er frístund lokuð þá daga. Mánudaginn 26. október er haustfrí og er frístund opin. Á meðan viðtalsdögum stendur verður sýning á munum nemenda úr list- og verkgreinum á göngum skólans. Hér má sjá sýnishorn.
Skóli hefst aftur þriðjudaginn 27. október samkvæmt stundaskrá. Hafið það gott í fríinu sem framundan er!
Lesa meira
16.10.2015
Hér má sjá myndir frá bleikum degi. Nemendur og starfsmenn voru hvattir til að mæta í bleiku til að sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini.
Lesa meira
12.10.2015
Mánudaginn 12. október komu báðir 9. bekkirnir í heimsókn í 1.bekk og spiluðu við nemendur þar og eins aðstoðuðu unglingarnir yngstu nemendur í stærðfræði. Báðir árgangarnir voru spenntir fyrir þessu uppbroti og óhætt er að segja að þetta hafi tekist vel. Svo skemmtilega vill til að það eru fern systkinapör í þessum bekkjum og voru yngri systkinin ákaflega glöð að fá þau eldri í heimsókn.
Allir krakkarnir stóðu sig frábærlega og unnu vel saman. Þau eldri voru góð fyrirmynd fyrir þau yngri, aðstoðuðu, hrósuðu og voru sallaróleg með þeim. Unglingarnir voru ánægðir með þetta eftir á, fannst þetta skemmtilegt uppbrot og gaman að vera með þeim yngstu.
Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru í tímunum.
Lesa meira
07.10.2015
Í dag komu góðir gestir frá íþróttafélaginu Akri færandi hendi en þeir gáfu skólanum nýja borðtennisspaða. Þeir koma sér vel þar sem foreldrafélagið gaf skólanum nýtt borðtennisborð við upphaf skólaárs. Íþróttafélagið Akur er með æfingar mánudaga 16:30-18:00, miðvikudaga og föstudaga 17:00-18:30 og er öllum velkomið að koma og prófa.
Lesa meira
01.10.2015
Föstudaginn 2. október er skipulagsdagur hjá starfsmönnum skólans en frí hjá nemendum.
Lesa meira
24.09.2015
Átakið "gengið í skólann" stendur yfir þessa dagana. Kennarar skrá hjá sér hvernig nemendur koma í skólann, þ.e. hvort þeir ganga, hjóla eða koma með bíl. Við hvetjum nemendur til að ganga eða hjóla á meðan við erum enn laus við snjó og hálku. Fyrstu vikuna sem átakið stóð yfir komu 92% gangandi eða á hjóli.
Lesa meira