05.04.2016
Dagana 9. -15. apríl dvelja 29 nemendur úr Gilja-, Glerár og Síðuskóla í Aarhus í Danmörku. Þetta eru nemendur sem hafa verið í dönskuvali í vetur. Með í för eru þrír dönskukennarar, þær Kristín List Malmberg úr Síðuskóla, Sigríður Hreinsdóttir úr Glerárskóla og Steinunn Kristín Bjarnadóttir úr Giljaskóla. Verkefnið er fjármagnað af Nordplus-Junior.
Lesa meira
01.04.2016
Í morgun voru afhent verðlaun fyrir hina árlegu lestrarkeppni 4. og 5. bekkjar. Markmiðið með keppninni var að auka
leshraða og lesskilning nemenda og að sem flestir nemendur læsu sér til
ánægju, þ.e. að þeir lærðu að meta ,,yndislestur“.
Tveir nemendur í hverjum
bekk fengu bókaverðlaun, þ.e. sá sem las flestar blaðsíður og sá
sem sýndi mestar framfarir. Einnig var keppni um það hvor árgangurinn læsi fleiri blaðsíður, en þau verðlaun fóru til 4. bekkjar en alls lásu nemendur rúmar 10 þúsund bls. Nemendur lásu á hverjum
degi í skólanum og einnig var lesið af kappi heima. Meðfylgjandi mynd er af 4. bekk, ásamt kennurum sínum, sem vann keppnina um flestar lesnar blaðsíður, en allir stóðu sig vel og sumir sýnda miklar framfarir á þeim tíma sem keppnin tók.
Lesa meira
01.04.2016
Þann 17. mars áttum við afar ánægjulegan dag í Hliðarfjalli. Meðfylgjandi eru myndir sem Sigurður Arnarson kennari tók. Hér má myndir.
Lesa meira
30.03.2016
Alþjóðlegur dagur einhverfunnar er laugardaginn 2. apríl og
föstudaginn 1.apríl næstkomandi hvetjum við alla til að klæðast bláu og vekja
þannig athygli á málefnum einhverfra barna en blái liturinn hefur fest sig í
sessi sem litur einhverfunnar um heim allan. Líkt og undanfarin ár er það BLÁR
APRÍL - Styrktarfélag barna með einhverfu, sem stendur fyrir deginum.Markmið bláa dagsins er að vekja athygli á einhverfu og fá landsmenn alla til
að sýna einhverfum stuðning sinn. Með aukinni vitund og þekkingu á einhverfu
byggjum við upp samfélag sem er betur í stakk búið til að skilja þarfir
einhverfra og virða framlag þeirra til samfélagsins. Við
hlökkum til að sjá ykkur öll í bláu föstudaginn 1. apríl. Stöndum saman og
fögnum fjölbreytileikanum. Því lífið er blátt á mismunandi hátt!
Lesa meira
22.03.2016
Niðurstöður foreldrakönnunar Skólapúlsins eru komnar á heimasíðu, sjá hér
Lesa meira
18.03.2016
FOKS ætla að efna til leiks i kjölfar lestarbingós Heimilis og skóla.
Ætlunin er að hvetja alla til að lesa mikið um páskana og taka þátt i leiknum.
Leikurinn er eftirfarandi:
Fylla á út blaðið og merkja við þegar lesið er.
Skila þarf inn öllum blöðum til Svövu ritara eftir páskana
Nemendur mega lesa eins mikið og þeir vilja og skila inn eins mörgum blöðum og þeir vilja.
Bingóspjald 1 Bingóspjald 2 Bingóspjald 3
Lesa meira
15.03.2016
Miðvikudaginn 16. mars var keppt í Skólahreysti í Íþróttahöllinni á Akureyri. Síðuskóli á titil að verja en skólinn hefur sigrað Akureyrarriðilinn síðustu þrjú ár. Skemmst er frá því segja Síðuskóli vann Akureyrarriðilinn með 47,5 stig sem er glæsilegur árangur. Keppendur voru Ágústa Dröfn Pétursdóttir, Hulda Karen Ingvarsdóttir, Guðni Jóhann Sveinsson og Ragúel Pinó Alexandersson. Varamenn voru Sævar Fylkisson og Embla Dögg Sævarsdóttir. Óskum þessum flottu fulltrúum skólans innilega til hamingju.
Myndir: Liðsmyndir, myndir frá keppninni á Akureyri
Lesa meira
15.03.2016
Næsta fimmtudag verður útivistardagur í Hlíðarfjalli ef veður leyfir. Fylgist með á heimasíðunni ef tvísýnt er með veður þennan morgun. Engin hefðbundin kennsla verður þennan dag og valgreinar verða ekki kenndar eftir hádegi. Mæting er á venjulegum tíma, klukkan 8:00 og fyrsta rúta fer frá skólanum klukkan 8:15.
Myndir frá útivistardeginum
Lesa meira
09.03.2016
Mánudaginn 7. mars var Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk. Nemendur 7. bekkjar og foreldrar ásamt nemendum 6. bekkjar komu saman á sal skólans við hátíðlega athöfn. Þar lásu 11 fulltrúar nemenda sem valdir höfðu verið í forvali í vikunni á undan upp kafla úr sögunni Ertu Guð afi eftir Þorgrím Þráinsson og ljóð að eigin vali. Tveir nemendur, þau Sigrún Reem Abed og Arnar Logi Viðarsson voru valin til að taka þátt í lokakeppninni sem haldin verður í Menntaskólanum á Akureyri þann 6. apríl nk. Björn Smári Gunnarsson verður til vara ef forföll verða meðal keppenda. Dómarar voru Helga Hauksdóttir og Sigríður Ása Harðardóttir. Hér má sjá fleiri myndir frá keppninni.
Lesa meira