ÍSAT

Afmælishátíð Síðuskóla

Afmælishátíð Síðuskóla þann 11. september heppnaðist afar vel. Um morguninn glímdu nemendur við ýmis óhefðbundin verkefni s.s. dans, parkour, spilaborgir, föndur og þrautir svo dæmi séu nefnd. Úti á nýja grillinu voru grillaðar pylsur sem vafðar voru inn í deig. Gleðin skein úr hverju andliti og veðrið lék heldur betur við okkur. Um helmingur stöðvanna var utan dyra og þá skiptir miklu máli að veðurguðirnir séu okkur hliðhollir. Seinni part dags tóku kennarar á móti nemendum en þá fóru þeir elstu í ratleik en aðrir spiluðu og sungu.  Hátíðardagskrá hófst svo á sal þar sem skólastjóri flutti erindi og tók á móti gjöfum. Margir tóku þátt í skrúðgöngu um hverfið og að henni lokinni fengu gestir að gæða sér á glæsilegum afmælistertum sem matráður og aðstoðarmenn höfðu unnið hörðum höndum við að útbúa.  Enn lék veðrið við okkur og margir kusu að dvelja utan dyra þar sem hægt var að hlusta á lifandi tónlist, grilla sykurpúða og leika í hoppukastala, kríta og blása sápukúlur. Starfsfólk skólans þakkar öllum sem lögðu hönd á plóginn og má þar sérstaklega nefna foreldrafélag skólans og þeim gestum sem glöddu okkur með nærveru sinni. Það var mikið á hátíðinni og má finna myndir hér og enn er verið að bæta fleiri myndum við.
Lesa meira

Skólahlaupið 2014

Í dag fór skólahlaupið fram í Síðuskóla. Þar hlupu margir efnilegir hlauparar og frábær árangur hjá nemendum. Nemendum er skipt í 3 hópa, yngsta stig, miðstig og elsta stig og síðan kynjaskipt í hópunum. Hlaupið fór í alla staði vel fram í frábæru veðri og hér fyrir neðan má sjá úrslitin í öllum flokkum. Fyrstu myndir frá hlaupinu eru komnar inn á síðuna. ÚRSLIT STRÁKAR 8. - 10. bekkur. 1. Ragúel Pino Alexandersson 8.B 08: 14 2. Haukur Brynjarsson 9.SJ 08:33 3. Hilmir Kristjánsson 10.HK 08:42     STELPUR 8. -10. bekkur. 1. Hulda Karen Ingvarsdóttir 8.BJ 09:14 2. Ágústa Dröfn Petursdóttir 9.SJ 09:38 3. Helga Klemenzdóttir 10.HK 09:53     STRÁKAR 5. - 7. bekkur. 1. Sigfús Fannar Gunnarsson 7.KH 09:07 2. Aron Ingi Magnússon 5.HB 09:14 3. Elmar Þór Jónssón 7.KH 09:20     STELPUR 5. - 7. bekkur. 1. Írena Sunna Björnsdóttir 5.HB 10:09 2. Andrea Ýr Reynisdóttir 7.KH 11:40 3. Vaka Jónsdóttir 7.KH 12:31     STRÁKAR 1. - 4. bekkur. 1. Ingimar Arnar Krístjánsson 4.MB 10:40 2. Viktor Smári Ingusson 3.MBT 10:54 3. Daníel Hrafn Ingvarsson 3.ASR 10:55     STELPUR 1. - 4. bekkur. 1. Kristel Eva Gunnarsdóttir 4.MB 10:58 2. Sólveig Alexandra Jónsdóttir 4.SES 11:20 3. Rakel Alda Steinsdóttir 4.MB 12:50
Lesa meira

Afmæli Síðuskóla

Boðskort Í haust eru 30 ár frá því Síðuskóli hóf starfsemi sína. Af því tilefni er foreldrum, fyrrum starfsmönnum og öðrum velunnurum boðið í hátíðardagskrá og kaffi þann 11. september klukkan 16:30 í íþróttahúsinu. Allir velkomnir.
Lesa meira

Í heimsókn hjá Nökkva

Á fimmtudag, 5.september  tók 6.bekkur strætó niður í  Nökkva, siglingaklúbb. Þar var tekið vel á móti okkur og allir fengu að prófa báta og fara með spíttbát. Veðrið gat ekki verið betra og dagurinn var frábær. Hérna má sjá myndir úr ferðinni.
Lesa meira

Rýmingaræfing í Síðuskóla

Í dag var haldin brunaæfing í skólanum. Kerfið fór af stað upp úr klukkan 9 og allir fóru út og gengu í röðum suður fyrir hús þar sem bekkjum var raðað upp eftir aldri. Kennarar voru með spjald á lofti sem er rautt öðru megin og grænt hinu megin en það gefur til kynna hvort allir í hópnum hafi skilað sér út.  Æfingin gekk vel og starfsfólk og nemendur með allt á hreinu. Tveir nemendur urðu eftir inni í skólanum, sem var fyrirfram ákveðið og reykkafarar frá slökkviliði fóru inn og sóttu þá.
Lesa meira

Fréttabréf 2

Hér má finna fréttabréf septembermánaðar.
Lesa meira

6. bekkur á veiðum með Húna

Á fimmtudaginn var 6. bekk boðið í siglingu með Húna II. Krakkarnir fengu fræðslu frá Hafró um borð og síðan var rennt fyirir fisk í blíðskaparveðri. Að lokum var partur af aflanum grillaður og allir fóru alsælir heim með fisk í poka. Myndir úr ferðinni má sjá hér ásamt fleiri myndum frá vinnu fyrstu daganna.  
Lesa meira

Fréttabréf 1

Hér má finna fyrsta fréttabréf skólaársins 2014-2015.
Lesa meira

Skólabyrjun ágúst 2014

Skólasetning í Síðuskóla verður fimmtudaginn 21. ágúst. Nemendur mæta á setningu í sal skólans en síðan verður stutt stund með umsjónarkennara í stofum.  Nemendur sem hefja nám í 1. bekk verða boðaðir í viðtal ásamt foreldrum hjá umsjónarkennara 21. eða 22. ágúst. 2. - 4. bekkur klukkan 9:00 5. - 7. bekkur klukkan 9:30 8. - 10. bekkur klukkan 10:00  Föstudaginn 22. ágúst verður skóli samkvæmt stundaskrá nema hjá 1. bekk þar sem enn verða foreldraviðtöl. Nemendur í 1. bekk mæta mánudaginn 25. ágúst og eiga þá stuttan skóladag en þriðjudaginn 26. ágúst mæta þeir skv. stundaskrá.  Kennarar við skólann hefja störf föstudaginn 15. ágúst.
Lesa meira

Námsgagnalistar fyrir skólaárið 2014-2015

Námsgagnalista fyrir veturinn 2014-2015 má finna hér.
Lesa meira