Fréttir

Litla upplestrarkeppnin í 4. bekk

Litla upplestrarkeppni 4. bekkjar var haldin á sal í gær. Keppnin er uppskeruhátíð nemenda, foreldra og kennara sem hafa unnið í samvinnu og markvisst með íslenska tungu og upplestur síðan keppnin var sett formlega á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember síðastliðinn. Það er skemmst frá því að segja að nemendur stóðu sig hreint frábærlega og fluttu þulur og bundið mál bæði í söng og framsögn. Það var virkilega ánægjulegt að hlýða á og greinilegt að þau hafa æft sig vel í vetur.

Sumum finnst skrýtið að nota orðið “keppni” þar sem enginn einn stendur uppi sem sigurvegari. Mikilvægt er að muna að keppnishugtakið í þessu verkefni felur einungis í sér að verða betri í lestri og framkomu í dag en í gær. Það er mikilvægt að geta bæði keppt að betri árangri og sett sér markmið án samkeppni við aðra en sjálfan sig. 

Litla upplestrarkeppnin er afkvæmi Stóru upplestrarkeppninnar eða Upphátt eins og hún er kölluð á Akureyri. Góðar fyrirmyndir eru mikilvægar og því voru fulltrúar okkar í þeirri keppni, þær Katrín Birta og Sóley Katla úr 7. bekk, fengnar til að lesa ljóð að þessu tilefni. 

Sjá myndir hér.

Lesa meira

Sápuboltafjör hjá 9. bekk

Nemendur í 9. bekk völdu að fara sápubolta sem umbun. Þau skemmtu sér vel og var þetta kærkomin tilbreyting í veðurblíðunni. 

Hér eru fleiri myndir.

Lesa meira

Síðuskóli í 2. sæti í Fiðringi 2025

Fulltrúar Síðuskóla náðu frábærum árangri í gærkvöldi í Fiðringi 2025 eða 2. sæti. Keppnin fór fram í Hofi og tóku tíu skólar þátt að þessu sinni. Mikil áhersla er lögð á að hugmyndin og útfærslan sé alfarið unglinganna sjálfra og einnig sjá þau um tæknimál og búninga, leikmynd og förðun. Atriði Síðuskóla heitir Það sem gerist í sjónum. Atriðið fjallar um þá ógn sem steðjar að sjávarlífverum vegna plastúrgangs og annarra mengandi efna sem berast í hafið. Atriðið hvetur áhorfendur til umhugsunar um mikilvægi umhverfisverndar og sjálfbærni. Atriðið og búningarnir voru glæsilega útfærðir enda uppskáru okkar konur eftir því. Óskum þeim til hamingju og hlökkum til að sjá meira á næsta ári.

Myndir frá kvöldinu og æfingaferlinu hér.

 

Lesa meira

Síðuskóli sigraði í flokki fjölmennari skóla í 1. maí hlaupinu

Það var metþátttaka í 1. maí hlaupinu í ár sem fram fór við frábærar aðstæður. Í þátttökukeppni grunnskóla bar Síðuskóli sigur úr býtum í flokki fjölmennari skóla með 19% þátttöku.  

Á myndinni má sjá hluta nemenda Síðuskóla. 

Lesa meira

Lið Síðuskóla lenti í 3. sæti í undankeppni Skólahreysti

Lið Síðuskóla lenti í 3. sæti í undankeppni Skólahreysti sem fram fór í Íþróttahöllinni í kvöld. Keppnin var æsispennandi og hnífjöfn, en aðeins eitt stig skildi á milli sigurliðsins frá Lundarskóla og liðanna sem enduðu í 2. og 3. sæti.

Við erum afar stolt af  frammistöðu okkar keppenda þeim Sóldísi, Kára, Höllu og Patreki ásamt varamönnunum Elíasi og Kolbrúnu Svönu sem öll stóðu sig gríðarlega vel og sýndu mikla liðsheild og keppnisanda.

Lesa meira

Sumarkveðja

Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum sínum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og þakkar veturinn. Megi allir hafa það sem best nú þegar sól hækkar á lofti.

Lesa meira

Saman til gleði og góðra verka

Barnamenningarhátíð á Akureyri fer fram þessa dagana og tóku nemendur á miðstigi Síðuskóla þátt og héldu góðgerðarhátíð í skólanum. Þar seldu nemendur muni sem þeir hafa búið til í vali undanfarnar vikur ásamt því að flytja ýmis atriði á sviði. Einnig voru veitingar sem nemendur bjuggu sjálfir til seldar. Frábær mæting var og söfnuðust hátt í 600 þúsund krónur sem Barnadeild SAK fær að gjöf. 

Við erum stolt af okkar fólki, bæði nemendum og starfsfólki. Við þökkum foreldrum fyrir þeirra aðstoð og öllum gestum kærlega fyrir komuna og stuðninginn!

Hér má skoða myndir frá því í gær. 

Lesa meira

Hressandi söngsalur á síðasta kennsludegi fyrir páskafrí

Nemendur mættu á söngsal í morgun þar sem raddböndin voru þanin. Að venju var byrjað á Síðuskólalaginu en síðan sungu allir saman lög sem hafa verið æfð undanfarið undir handleiðslu Heimis Ingimarssonar.  Á söngsal fór fram áskorun þar sem Gunnar, umsjónarkennari í 7. bekk,  gaf skeggið sitt til styrktar Barnadeildar SAK.

Hér má sjá myndir frá því í morgun. 

Lesa meira

Vel heppnuðum þemadögum lokið

Í vikunni voru þemadagar í skólanum. Á yngsta stigi var þemað heimabærinn minn þar sem unnið var með hverfin í bænum, innbæinn, þorpið, brekkuna og eyrina.   Miðstig vann við undirbúning Barnamenningarhátíðar sem sjá má frekari upplýsingar um hér á heimasíðunni. Á unglingastiginu fræddust nemendur um hnattrænt jafnrétti, hugtakið rætt og tekjur fjölskyldna víðs vegar um heim bornar saman. Á miðvikudag var stöðvavinna, þá var farið í alls konar leiki sem reyndu á margs konar hæfileika og á fimmtudag var spilað, föndrað og tekinn góður göngutúr auk þess sem nærri helmingur nemenda eyddi morgninum í íþróttahúsinum í alls konar kappleikjum. 

Vinnan tókst vel, var fjölbreytt og höfðu nemendur gaman af eins og sjá má á þessum myndum.

 
Lesa meira