Við í Síðuskóla höfum ákveðið að endurtaka leikinn með símalausu dagana. Þetta gekk ljómandi vel hjá okkur síðast og fannst flestum nemendum þetta góð tilbreyting. Frá og með morgundeginum 22. mars og fram að páskaleyfi sem hefst þann 1. apríl verða því símalausir dagar. Þessa daga eiga nemendur að mæta án síma í skólann en ef þeir þurfa af einhverjum ástæðum að taka hann með í skólann láta foreldrar umsjónarkennara vita svo hægt sé að setja hann í læsta geymslu meðan á skóla stendur. Ef nemendur fylgja ekki þessu fyrirkomulagi afhenda þeir starfsmanni símann sem geymir hann í læstri hirslu þar til skóla lýkur. Þessi hugmynd var rædd í skólaráði skólans og hún samþykkt þar. Það er von okkar að símalausir dagar fái sama góða hljómgrunninn eins og síðast og við njótum samveru og samskipta án símanna.
Fyrir skömmu tók 4. bekkur skólans þátt í árlegri teiknisamkeppni Mjólkursamsölunnar. Alls bárust 1200 myndir í keppnina frá 60 skólum um land allt. Að lokum vor tíu verðlaunamyndir valdar úr þessum mikla fjölda og var ein þeirra frá Síðuskóla. Það voru þær Edda Bjarney Víkingsdóttir, Aþena Vigdís Sigurðardóttir og Ragnheiður Lilja Steinarsdóttir sem teiknuðu myndina. Þær fengu allar viðurkenningarskjal en auk þess fékk myndin peningaverðlaun sem fara í bekkjarsjóð. Við óskum stelpunum innilega til hamingju með árangurinn. Á myndunum sem fylgja má sjá mynd af verðlaunahöfunum og verðlaunamyndinni.
Í morgun var söngsalur hjá okkur í Síðuskóla. Það voru 1. og 6. bekkur völdu lögin og tóku nemendur vel undir við undirleik Hemma Ara. Umhverfisnefnd kynnti nýjan Samgöngusáttmála Síðuskóla en markmið með honum eru:
Minnka mengun með umhverfisvænum ferðamáta.
Hjálpa nemendum og starfsfólki að heilsuefla sig með virkum ferðamáta.
Minnka notkun bíla.
Eitt af þeim skemmtilegu verkefnum sem við vinnum að skólanum er samstarfið við leikskólana í hverfinu, Hulduheima Sel og Krógaból. Samstarfið hefur verið í nokkuð föstum skorðum undanfarin ár, en á samstarfsfundi í haust kviknaði sú hugmynd að hafa sameiginlega samverustund á sal Síðuskóla þar sem leikskólarnir kæmu og hittu 1. bekk. Sú stund var í morgun og var mjög vel heppnuð, 1. bekkur sýndi leikrit, nokkrir nemendur lásu úr frumsömdum bókum og í lokin sungu allir saman við undirleik Systu. Allir voru sammála um að endurtaka þetta fljótlega aftur. Hér má sjá myndir sem voru teknar í morgun. Takk fyrir komuna Hulduheimar Sel og Krógaból!
Nemendur úr 7. - 10. bekk í Síðuskóla tóku þátt í Stórþingi ungmenna í Hofi í gær, 28. febrúar. Síðuskóli átti sextán fulltrúa á þinginu, fjóra úr hverjum árgangi. Umræðuefnin voru margvísleg s.s. snjómokstur, tómstundir, geðheilbrigðismál, strætó og fleira. Niðurstöður Stórþingsins verða svo ræddar á bæjarstjórnarfundi Unga fólksins þann 14. mars nk. Þar gefst fulltrúum ungmennaráðsins tækifæri til þess að ávarpa bæjarstjórnina og koma á framfæri þeim málum sem börn og ungmenni á Akureyri telja að þarfnist áheyrnar bæjarstjórnar til að bæta stöðu þeirra í sveitarfélaginu okkar.
Í morgun var Upphátt, áður Stóra upplestrarkeppnin, haldin á sal skólans. Þar lásu 8 nemendur úr 7. bekk sem höfðu komist áfram eftir bekkjarkeppnina. Allir keppendur stóðu sig mjög vel, en að lokum þurfti að velja tvo nemendur áfram til að keppa fyrir hönd skólans í lokakeppninni sem haldin verður 7. mars næstkomandi í Hofi. Þeir nemendur sem voru valdir eru þær Arna Lind Jóhannsdóttir og Sigurlaug Salka Steinsdóttir. Við óskum þeim innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með þeim í lokakeppninni í næstu viku. Hér má sjá myndir frá keppninni í morgun.
Á þriðjudaginn (21. febrúar) verður öskudagsball fyrir 1.-4 bekk og 5.-7. bekk.
1.-4. bekkur:
Þriðjudaginn 21. febrúar verður öskudagsball fyrir 1.-4. bekk klukkan 16:00-18:00. Það kostar 500 krónur inn og það verður sjoppa á staðnum. Leikir, tónlist, dans og vinningur fyrir 2 bestu búningana! Allur ágóði ballsins rennur í ferðasjóð 10. bekkjar. Hlökkum til að sjá ykkur!
Kv. 10. bekkur
5.-7. bekkur
Á þriðjudaginn verður öskudagsball fyrir 5.-7. bekk klukkan 19:00-21:00. Það kostar 500 krónur inn og það verður sjoppa á staðnum. Leikir, tónlist, dans og vinningur fyrir 2 bestu búningana! Allur ágóði ballsins rennur í ferðasjóð 10. bekkjar. Hlökkum til að sjá ykkur!
Kv. 10. bekkur
Sjoppa verðlisti:
Mars 150kr
Kitkat 150
Stjörnurúlla 100kr
Þristur 50kr
Mentos 150kr
Fruitella 150kr
Skalle 250 kr
Svali 100
Gos 200
Á ensku:
A ball will be held in Síðuskóli for students in 1. -4. grade on Tuesday 21. February from 16:00- 18:00.
The entrance fee is 500 ISK and candy will also be sold.
A ball will be held in Síðuskóli for students in 5. -7. grade on Tuesday 21. February from 19:00- 21:00.
The entrance fee is 500 ISK and candy will also be sold.
The entrance fee will go to the 10th grade travel fund.