Fréttir

Skrímsli í heimsókn

Í morgun fengum við í skólanum góða heimsókn frá Leikfélagi Akureyrar. Leikfélagið er þessa dagana að sýna Leikritið Litla skrímslið og stóra skrímslið, byggt á bók sem margir nemendur þekkja og komu skrímslin í heimsókn á sal í morgun. Þau spjölluðu við nemendur í 1. – 4. bekk, sungu eitt lag og dönsuðu. Þetta var mjög skemmtileg heimsókn sem nemendur höfðu gaman af eins og sjá má á þessum myndum.

Lesa meira

Skipulagsdagur þriðjudaginn 16. janúar

Við í skólanum minnum á skipulagsdaginn þriðjudaginn 16. janúar. Þann dag er engin kennsla og Frístund er lokuð allan daginn eins og sjá má á skóladagatali. 

Lesa meira

Jólakveðja

Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir. Skrifstofan er lokuð þannig að hringja verður beint í síma Frístundar 461 3473.

 

Lesa meira

Hin árlega spurningakeppni Síðuskóla fór fram í dag

Hin árlega spurningakeppni í 8.-10. bekk fór fram í dag, 20. desember. Allir þátttakendur stóðu sig með prýði en það var lið 10. bekkjar sem stóð uppi sem sigurvegari. Í liðinu voru þau Bryndís Huld, Gunnar Brimir og Sóley Eva.  Hér eru nokkrar myndir frá keppninni.

 
Lesa meira

Litlu jól Síðuskóla

Litlu jólin verða þann 21. desember. Það koma allir í skólann kl. 9.00 og fara heim um kl. 11.00. Fyrst verður hópnum skipt í salinn þar sem nemendur í leiklistarvali á miðstigi sýna jólaleikrit og heimastofur en eftir það hittast svo allir í íþróttasalnum og ganga saman í kringum jólatréð.

 Frístund er opin þennan dag frá kl. 8.00-9.00 og 11.00-16.15 fyrir þá sem þar eru skráðir.

 
Lesa meira

Hurðaskreytingakeppni Síðuskóla 2023

Síðustu ár hefur farið fram hurðaskreytingakeppni í Síðuskóla. Úrslit liggja fyrir þetta skólaárið, val dómnefndar var erfitt og hefði hún viljað veita fleiri verðlaun.
Sigurvegari keppninnar í ár er 3. bekkur. Verkið sýnir mikið hugmyndaflug, það er samþætt við margar námsgreinar og þar er að finna mikla natni í útfærslu.
Það er virkilega skemmtilegt að fara um skólann og sjá allar skreytingarnar og lífgar svo sannarlega upp svartasta skammdegið. 
Hér eru myndir af öllum hurðunum.  



Lesa meira

Jólasöngsalur

Fimmtudaginn 7. desember var sannkölluð jólastund í Síðuskóla. Dagurinn hófst á jólasöngsal þar sem okkar eini sanni Heimir Ingimars leiddi söng. Í hádeginu var síðan sannkallaður jólamatur á boðstólnum, skinka og tilheyrandi meðlæti. 

Hér má skoða myndir frá söngsal. 

Lesa meira

Uppfinningavinna í 4. bekk

Hér eru myndir frá verkefni dagsins í 4.bekkk.

Við gerðumst uppfinningamenn og notuðum ýmsan efnivið til að búa til líkan að tækniuppfinningu.

Allir voru búnir að teikna og útskýra sitt líkan og svo var komið að því að framkvæma.

Hér er hlekkur á myndir úr vinnu dagsins.

 

Lesa meira

Opnun eldvarnarátaks og rýmingaræfing

Í morgun var haldin rýmingaræfing í skólanum í tengslum við að Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna opnaði eldvarnarátak sitt í Síðuskóla. Eldvarnarátak þetta miðar við að fara í alla grunnskóla á landinu og tala við 3. bekkinga um eldvarnir á heimilum og er þetta í fyrsta sinn sem það er opnað utan höfuðborgarsvæðisins. Áður en æfingin hófst var myndin um Loga og Glóð sýnd og voru umræður á eftir. Í framhaldinu var skólinn rýmdur og var í fyrsta sinn notaður gervieldur til að hafa aðstæður sem raunverulegastar. Að æfingu lokinni fengu starfsmenn að reyna sig við að slökkva eld og nemendur skoðuðu bíla slökkviliðsins. Æfingin heppnaðist mjög vel og hér má sjá myndir frá henni.

Lesa meira